Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Gróður á norðurslóðum tekur örum breytingum með...
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að loftslag heimskautasvæða hlýnar nú mun hraðar en í öðrum lífbeltum jarðar og það gerir hávaxnari tegundum kleift að nema þar land, auk þess sem tegundir sem fyrir voru ná meiri hæð. Þannig hefur gróður almennt hækkað á þessum svæðum á síðustu áratugum.
Vel heppnuð Vísindavaka að baki
Miðpunktur Vísindavöku var sýningarsvæðið þar sem gestir gátu kynnst viðfangsefnum vísindafólks á fjölmörgum sýningarbásum. Náttúrufræðistofnun Íslands var á staðnum og kynnti íslenska refinn og rannsóknir honum tengdar.
Íslenski refurinn á Vísindavöku Rannís
Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðasta föstudag í september undir heitinu „Researchers' Night“.
Dagur íslenskrar náttúru
Ríkisstjórn Íslands ákvað að tileinka íslenskri náttúru sérstakan heiðursdag til að undirstrika mikilvægi hennar. Dagurinn sem varð fyrir valinu er fæðingardagur Ómars Ragnarssonar, 16.
Frjómælingar í ágúst 2018
Á Akureyri voru frjókorn samfellt í lofti allan ágúst og var heildarfjöldi þeirra 1.654 frjó/m3, sem er nærri tvöfalt meðaltal áranna 1998–2017. Langflest frjókornanna voru grasfrjó, sem mældust alla daga, alls 1.514 frjó/m3.
Frjómælingar í júlí
Heildarfjöldi frjókorna í júlímánuði á Akureyri var 916 frjó/m3, svolítið yfir meðaltali 1998-2017 sem er 895 frjó/m3. Frjókorn voru samfellt í lofti á Akureyri allan mánuðinn. Langflest frjókornanna voru grasfrjó, 611 frjó/m3 og mældust þau nánast alla daga.
Leiðangur líffræðinga í Surtsey
Tegundafjöldi æðplantna hefur haldist nokkuð stöðugur síðustu ár í Surtsey eða um og yfir 60 tegundir en gróðurinn er almennt þroskamikill þetta sumarið vegna ríkjandi og langvarandi úrkomutíðar. Máfavarpi hefur heldur hnignað í eynni en varp fýla er með eðlilegu móti.
Náttúrufyrirbæri sem njóta sérstakrar verndar í...
Í 61. gr. náttúruverndarlaga er fjallað um sérstaka vernd tiltekinna vistkerfa og jarðminja. Náttúrufræðistofnun Íslands skal halda skrár yfir náttúrufyrirbæri sem þar eru talin upp, að birkiskógum undanskildum sem eru á höndum Skógræktarinnar.
Frjómælingar í júní
Í Urriðaholti í Garðabæ voru frjótölur mjög lágar í júní. Heildarfrjótala mánaðarins er 373 frjó/m3 en meðalfrjótala í júní er 1352 frjó/m3. Mest var um furufrjó, þá birkifrjó og loks grasfrjó en lítið mældist af öðrum tegundum. Mikil úrkoma og kuldi í júní skýrir hversu fá frjókorn mældust.