Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_left
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Æðarfugl verpir í Surtsey
Sitthvað markvert gerðist í leiðangri sem farinn var til Surtseyjar dagana 13.–17. júlí.
Risahvannir kortlagðar á Akureyri
Á Akureyri var gerð ítarleg leit að tegundum risahvanna og GPS-hnit allra fundarstaða skráð. Í ljós kom að risahvannir eru afar algengar í bænum, ekki aðeins í görðum þar sem þær hafa verið ræktaðar sem skrautplöntur, heldur eru þær víða utan þeirra.
Frjótíma birkis að ljúka en grasa að hefjast
Í Garðabæ var heildarfjöldi frjókorna í júní 949 frjó/m3 sem er talsvert undir meðaltali síðustu fjögurra ára (1589 frjó/m3). Aðalfrjógerðir voru birki-, gras- og furufrjó. Á Akureyri fór heildarfjöldi frjókorna upp í 1151 frjó/m3 sem er meira en í meðalári (671 frjó/m3).
Lúsmý herjar á íbúa sumarhúsa
Lúsmý tilheyrir ættinni Ceratopogonidae sem hýsir fjölda tegunda þess um heim allan. Hér á landi hafa einungis sex tegundir verið nafngreindar til þessa, en ættin hefur litla athygli hlotið vegna þess hve óaðgengileg hún er og torvelt að greina tegundirnar.
Borkjarnasafn flyst á Breiðdalsvík
Borkjarnar falla til við jarðboranir og eru nauðsynleg gögn við jarðvísindalegar rannsóknir hvort sem um ræðir grunnrannsóknir eða hagnýtar í þágu orkuöflunar eða mannvirkjaframkvæmda.
Ný skýrsla um ágengar, framandi tegundir
Náttúrufræðistofnun Íslands tók nýverið þátt í verkefni á vegum NOBANIS (European Network on Invasive Alien Species) sem fólst í að kortleggja með hvaða hætti ágengar, framandi tegundir berast til landa í Norður-Evrópu.
Mítlar húkka sér far með ferðamönnum frá...
Nú í byrjun júní kom íslensk kona heim frá Virginíu á austurströnd Bandaríkjanna og uppgötvaði hrúðurblett á kviðnum. Þegar hún hafði kroppað blettinn af komu í ljós spriklandi fætur.
Frjótölur undir meðaltali
Á Akureyri kom fyrsta birkifrjókornið í gildruna þann 13. apríl og í kjölfarið komu nokkur til viðbótar. Síðan sást ekkert birkifrjó fyrr en undir lok mánaðar, þann 30. maí, þegar tvö korn mældust. Frjótölur birkis gætu því orðið háar í júní.