Jafnlaunavottun

Jafnlaunavottun 2023-2026

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur hlotið jafnlaunavottun sem er staðfesting á því að jafnlaunakerfi stofnunarinnar samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Jafnlaunastaðallinn er stjórnunarstaðall fyrir jafnlaunakerfi og nýtist öllum fyrirtækjum og stofnunum óháð stærð, starfsemi, hlutverki og kynjahlutfalli. Hann tryggir fagleg vinnubrögð sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun vegna kyns.

Jafnlaunakerfi Náttúrufræðistofnunar Íslands er ætlað að stuðla að því að starfsfólk sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf fái sömu laun og að ákvarðanir í launamálum séu málefnalegar og feli ekki í sér mismunun. 

Nánar má fræðast um jafnlaunavottun á vef Stjórnarráðs Íslands.