Frjómælingar

SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Á AKUREYRI

SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Í GARÐABÆ

BIRKIFRJÓGRASFRJÓFRJÓKORNASPÁ

Tímamörk

Langtímaverkefni sem hófst árið 1988. 

Um verkefnið – Markmið og verkþættir

Náttúrufræðistofnun Íslands hefur um árabil mælt fjölda frjókorna í andrúmslofti og greint þau til tegunda með það að markmiði að afla upplýsinga um magn og tegundafjölbreytni.  Mælingar fara alla jafna fram í apríl til september ár hvert og nýtast meðal annars þeim sem eru haldnir frjóofnæmi

Vöktun frjókorna hefur lengst af farið fram með notkun tveggja frjógildra af gerðinni Burkard Seven Day volumetric spore trap sem talið hefur verið úr handvirkt vikulega. Önnur er staðsett á höfuðborgarsvæðinu þar sem mælt hefur verið frá árinu 1988 og hin á Akureyri þar sem frjókorn hafa verið mæld frá 1998.

Tækniframfarir í frjóvöktun hafa verið miklar á heimsvísu og mun Náttúrfræðistofnun Íslands nú skipta úr hefðbundnum frjómælingum með Burkard frjógildrum yfir í sjálfvirkt frjóvöktunarkerfi (Swisen Poleno Mars) til að bregðast við vaxandi eftirspurn eftir rauntímagögnum.

Sjálfvirkar frjómælingar hófust á Akureyri seinnipart sumars 2022 og vorið 2024 munu sjálfvirkar mælingar einnig hefjast í Garðabæ með aðstoð frá umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneytinu. Þessi breyting gerir okkur kleift að miðla upplýsingum um gerð og magn frjókorna í andrúmsloftinu í rauntíma og munu upplýsingarnar koma til með að uppfærast á klukktíma fresti á heimasíðu Náttúrfræðistofnunar. 

Sjálfvirkt frjóvöktunarkerfi – Swisens Polleno Mars 

Tækið mælir frjókorn í loftinu með því að soga inn 40 lítra af lofti á mínútu ásamt öllum ögnum þess (sót, frjókorn, ryk og sveppagró). Agnirnar fara í gegnum mælihólf þar sem heilmyndartækni (Holography) er notuð til að mæla þær á meðan þær eru á flugi. Í kjölfarið er notuð gervigreind til greina gögnin og veita upplýsingar um mismunandi tegundir frjókorna og styrk þeirra í loftinu.

Birting gagna

Í flipunum SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Á AKUREYRI og SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Í GARÐABÆ (hlekkur verður aðgengilegur fljótlega) er hægt að nálgast þrjú gröf sem sýna:

  • styrk helstu ofnæmisvaldandi frjókorna í rauntíma síðasta sólarhringinn  
  • gögn síðasta mánaðar 
  • gögn frá upphafi sjálfvirkra mælinga.  

Birt eru gröf fyrir daglegar frjótölur birkis og grass með samanburði við síðustu 10 ár.  

Frjókornaspá er uppfærð reglulega yfir frjótímabilið en hún segir til um hvaða frjókorna má vænta í andrúsloftinu næstu daga og í hve miklu magni.  

Fróðleikur og nánari upplýsingar

Frjókorn og ofnæmisvaldar

Frjóalmanak er uppfært árlega og gefur vísbendingar um hvenær má búast við frjókornum í lofti.

Samantekt frjómælinga yfir sumarmánuðina og fyrri ár.

Frjókornaspá

SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Á AKUREYRI

SJÁLFVIRKUR FRJÓKORNAMÆLIR Í GARÐABÆ

BIRKIFRJÓ - GRASFRJÓ

Frjófréttir eru birtar með öðrum fréttum á vefnum og á Facebook-síðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.

European Pollen Information

Niðurstöður

Przedpelska-Wasowicz, E.M., P. Wasowicz, A.Ó. Áskelsdóttir, E.R. Guðjohnsen og M. Hallsdóttir 2021. Characterization of pollen seasons in Iceland based on long-term observations: 1988–2018. Aerobiologia (2021). https://doi.org/10.1007/s10453-021-09701-y

Margrét Hallsdóttir 2007. Frjótími grasa á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 75(2–4): 107–114.

Tengiliðir

Ewa Maria Przedpelska-Wasowicz, loftlíffræðingur, ewa.m.przedpelska-wasowicz@ni.is

Aníta Ósk Áskelsdóttir, líffræðingur, anita.o.askelsdottir@ni.is