Nýtt starfsfólk
Dr. Agnes-Katharina Kreiling hefur verið ráðin til Náttúrufræðistofnunar sem umsjónarmaður Mývatnsrannsókna- og vöktunar.
Mikil fækkun fálka!
Varpstofn fálka hefur verið vaktaður frá árinu 1981 á Norðausturlandi. Niðurstöður 2024 sýna að varpstofninn hefur ekki verið minni frá upphafi vöktunar 1981, einnig að viðkoman í ár var sú lakasta frá upphafi mælinga. Ástæðan fyrir lélegri viðkomu var tíðarfar á varptíma og ungatíma.
Flýtileiðir
Vöktun náttúruverndarsvæða og lykilþátta íslenskrar náttúru
Unnið er að því að setja á laggirnar heildstæða vöktunaráætlun á landsvísu til vöktunar náttúruminja á náttúruverndarsvæðum og öðrum svæðum sem eru undir álagi vegna ágangs ferðamanna. Áhersla er lögð á að vakta náttúrufarsþætti sem eru undirstaða náttúruverndargildis svæðanna, svo sem gróður, jarðminjar, fugla eða spendýr eftir því sem við á.