Gróðureldar vorið 2015
Hinn 1. maí kom upp eldur á mýrlendissvæði norðaustur af Stokkseyri á milli jarðanna Efra-Sels og Hoftúns. Eldurinn breiddist hratt út í norðaustan strekkingi og tók það slökkviliðið nokkrar klukkustundir að ráða niðurlögum hans. Að austan og sunnan brann eldurinn að skurði Flóaáveitunnar og Selvatni sem hefti útbreiðslu hans en að vestan þurfti að beita sinuklöppum til að kæfa eldinn. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands skoðuðu áhrif brunans nokkrum dögum seinna og kortlögðu útmörk. Svæðið sem brann var í heild 18 hektarar að stærð. Gróðurkort af landinu sem brann sýnir að þar var aðallega mýrlendi með mýrastör og gulstör, graslendi og hrossanálarjaðar.
Daginn eftir, hinn 2. maí, kviknaði sinueldur á jörðinni Fáskrúðarbakka á Snæfellsnesi. Eldurinn kom upp sunnan vegar og varð fljótt að miklu báli í hvassri norðaustanátt. Breiddist hann til suðvesturs og varð lítið við ráðið, enda aðstæður til slökkvistarfs erfiðar í illfæru landi. Eldurinn fékk því að mestu að hafa sinn gang og brenna að ám og skurðum sem stöðvuðu útbreiðslu hans. Að austan og sunnan brann eldurinn að Kleifá og Laxá, niður til Straumfjarðarár en að norðan og vestan stöðvaðist hann við framræsluskurði. Til að kortleggja brunasvæðið var notuð Landsat gervitunglamynd sem tekin var um hádegisbil þann 7. maí. Í ljós kom að brunasvæðið á Fáskrúðarbakka var alls 3,19 km2 (319 ha) og er það næststærsta svæðið sem kortlagt hefur verið frá og með Mýraeldunum miklu vorið 2006. Þó er það aðeins um tuttugasti hluti af landinu sem brann á Mýrum. Gróðurkort af Fáskrúðarbakka sýnir að brunasvæðið náði einkum til framræsts flóa og mýrlendis með fjölbreyttu gróðurfari.
Aðfararnótt 13. maí kviknaði síðan eldur á 0,25 hektara svæði í Almannadal, austan við Rauðavatn í Reykjavík. Þar logaði glatt í lúpínusinu í ungum birki- og furuskógi. Slökkvilið réði fljótt niðurlögum eldsins sem hefði getað farið um miklu víðáttumeira svæði og að nálægum byggingum
Dagsetning elds | Svæði | Gróðurlendi | Brunnið land (ha) |
---|---|---|---|
30. mars 2006 | Mýrar | Mýrar og flóar | 6.700 |
12. júní 2007 | Miðdalsheiði | Mosaþemba | 9 |
16. apríl 2008 | Kross og Frakkanes á Skarðsströnd | Mýrar og lyngheiði | 105 |
29. apríl 2008 | Útmörk Hafnarfjarðar | Lúpína | 13 |
5. júní 2009 | Víðivallargerði í Fljótsdal | Graslendi með unglerki | 0,5 |
22. júlí 2009 | Við Helgafell ofan Hafnarfjarðar | Mosaþemba | 8 |
26. maí 2010 | Jarðlangsstaðir á Mýrum | Birkikjarr, mýri og graslendi | 13 |
6. júní 2012 | Heiðmörk | Lúpína og furulundur | 0,4 |
16. júní 2012 | Ásland í Hafnarfirði | Lúpína | 1 |
3. ágúst 2012 | Hrafnabjörg í Laugardal í Ísafjarðardjúpi | Mýrlendi og kvistlendi | 15 |
25. mars 2013 | Gröf í Lundarreykjadal | Tún, graslendi og mólendi | 39 |
30. mars 2013 | Hvammur í Skorradal | Graslendi og kjarr | 0,3 |
31. mars 2013 | Merkihvoll á Landi | Lúpína, gras og trjárækt | 2 |
1. maí 2015 | Norðan Stokkseyrar | Mýrlendi | 18 |
2. maí 2015 | Fáskrúðarbakki, Snæfellsnesi | Mýrlendi | 319 |
13. maí 2015 | Almannadalur, Reykjavík | Lúpína, ungskógur | 0,25 |