Eydís forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar
Eydís Líndal Finnbogadóttir hefur verið ráðinn forstjóri Náttúrufræðistofnunar, en áður var hún settur forstjóri er sameining Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn, Landmælinga Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands áttu sér stað 1.júlí síðastliðinn.
Áhrif norðurljósa á GPS/GNSS mælingar
Norðurljós eru undurfallegar ljósabreytingar á himni sem myndast þegar rafhlaðnar agnir frá sólinni rekast á segulsvið jarðar. Norðurljós eru því ekki bara fögur heldur geta þau haft veruleg áhrif á rafsegulbylgjur og þar með GPS/GNSS mælingar.
Flýtileiðir
Vöktun náttúruverndarsvæða og lykilþátta íslenskrar náttúru
Unnið er að því að setja á laggirnar heildstæða vöktunaráætlun á landsvísu til vöktunar náttúruminja á náttúruverndarsvæðum og öðrum svæðum sem eru undir álagi vegna ágangs ferðamanna. Áhersla er lögð á að vakta náttúrufarsþætti sem eru undirstaða náttúruverndargildis svæðanna, svo sem gróður, jarðminjar, fugla eða spendýr eftir því sem við á.