Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_left
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Nýtt gróðurkort af Skorradalshreppi
Nýja gróðurkortið er í mælikvarða 1:25.000. Það verður fyrst og fremst nýtt til skipulagningar mótvægisaðgerða gegn gróðureldum, einkum með tilliti til mismunandi eldsmats í gróðurfélögum.
Hnignun skóg- og kjarrlendis í Þjórsárdal á...
Fyrsta Hrafnaþing vetrarins verður haldið kl. 9:15 að morgni miðvikudagsins 15. október.
Þá mun Friðþór Sófus Sigurmundsson doktorsnemi við Háskóla Íslands flytja erindi sem nefnist „Hnignun skóg- og kjarrlendis í Þjórsárdal frá 1587 til 1938“.
Rjúpnaveiði 2014
Umhverfisráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða 2014 og fallist á ráðleggingar Náttúrufræðistofnunar um ráðlagða rjúpnaveiði upp á 48.000 fugla. Sölubann á rjúpum verður áfram í gildi.
Risahvannir í íslenskri náttúru
Tegundirnar sem um ræðir eru bjarnakló, Heracleum mantegazzianum, og tröllakló, H. persicum. Líta má á tilvist tegundanna sem ógn við náttúruleg vistkerfi því þær breiðast yfir innlendan gróður á auðveldan hátt.
Lífríki Íslands: vistkerfi lands og sjávar
Í bókinni, sem er ætlað að efla náttúruvitund þjóðarinnar, er rýnt í vistkerfi Íslands og fjallað um lífríki sjávar og strandsvæða; lífríki ferskvatns, bæði straum- og stöðuvatna, og lífríki þurrlendis. Meðal annars er fjallað um:
Ganga í tilefni af degi íslenskrar náttúru
Dagurinn var fallegur með stilltu veðri og sólskyni og komnir haustlitir í hraunið. Gengið var um svokallaðan „Berklastíg“ að Jónshellum og síðan með hraunjaðrinum að Maríuhellum.
Dagur íslenskrar náttúru
Gangan hefst kl. 12:15 og verður undir leiðsögn Sigmundar Einarssonar jarðfræðings og Ásrúnar Elmarsdóttur plöntuvistfræðings. Mæting er við hús Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ. Áætlaður göngutími er um 45-60 mínútur.
Sérvefur um dag íslenskrar náttúru
Suðrænar vatnaplöntur nema land á Íslandi
Vatnaplöntur hafa dreifst víða um heiminn og hafa 96 aðfluttar tegundir fundist í Evrópu. Stærstur hluti landnáms hefur átt sér stað í hlýju loftslagi sunnan til í álfunni en aðeins fáar tegundir hafa numið land í Norður- og Austur-Evrópu.
Skógarmítlar láta á sér kræla
Skógarmítill er sá nýliðinn í ríki smádýranna sem jafnan fær mesta umfjöllun og ratar reglulega í fjölmiðla. Umræðan mótast gjarnan af ótta við blóðsuguna þessa og sýkinguna sem af bitum getur leitt. Jafnvel heyrist af fólki sem hikar við að njóta náttúrunnar og forðast skógargöngur.