Kalmanstjörn–Garðskagi
FG-V 1
Hnit – Coordinates: N64,01001, V22,70994
Sveitarfélag – Municipality: Sandgerðisbær, Garður
IBA-viðmið – Category: A41, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 1.330 ha
Fjara og grunnsævi frá Kalmanstjörn að Garðskaga á Reykjanesskaga. Syðst eru brimasamar klettafjörur. Þá taka Ósar við sem eru grunnur vogur og síðan þangfjörur með leirublettum. Fjölbreytt fuglalíf er á þessu svæði árið um kring. Á fartíma á vorin eru stórir hópar vaðfugla í fjörum og hefur sanderla náð alþjóðlegum verndarviðmiðum (1.300 fuglar) en hefur fækkað á síðari árum. Þetta svæði er einnig alþjóðlega mikilvægt fyrir straumendur og sendlinga á vetrum.
Svæðið er að hluta til á náttúruminjaskrá og IBA-skrá, þ.e. Ósar og fjörur og tjarnir frá Stafnesi og norður úr.
Helstu fuglategundir á svæðinu Kalmanstjörn–Garðskagi – Key bird species in Kalmanstjörn–Garðskagi
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Æður1 | Somateria mollissima | Varp–Breeding | *3.000 | 1999 | 1,0 | B1i, B2 |
Straumönd2** | Histrionicus histrionicus | Vetur–Winter | 153 | 1999 | 1,1 | B1i |
Sanderla3 | Calidris alba | Far–Passage | 1.300 | 1989 | 1,1 | A4i, B1i |
Sendlingur4 | Calidris maritima | Vetur–Winter | 612 | 2005–2008 | 1,2 | A4i, B1i |
*Pör. – Pairs. **Eyri N Hafnabergs–Sandgerði 1Jónas Jónsson, ritstj. 2001. Æðarfugl og æðarrækt á Íslandi. Rit Æðarræktarfélags Íslands. Reykjavík: Mál og mynd. 2Arnþór Garðarsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2003. Útbreiðsla og fjöldi straumanda á Íslandi að vetrarlagi. Bliki 23: 5–20. 3Guðmundsson, G.A. og Å. Lindström 1992. Spring migration of Sanderlings Calidris alba through SW Iceland: wherefrom and whereto? Ardea 80: 315–326. 4Náttúrufræðistofnun Íslands, vetrarfuglatalningar – IINH, mid-winter counts. |
English summary
Kalmanstjörn–Garðskagi rocky coast and shallow marine waters, SW-Iceland, are an internationally important wintering area for Histrionicus histrionicus (153 birds), Calidris maritima (612 birds) as well as a staging site for Calidris alba (1,300 birds).