Grímsey út af Eyjafirði
SF-N 8
Hnit – Coordinates: N66,55202, V17,99726
Sveitarfélag – Municipality: Akureyrarkaupstaður
IBA-viðmið – Category: A4i, A4ii, A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð – Area: 2.199 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Grímsey er nyrsta byggða eyja við Ísland og liggur um 41 km utan við mynni Eyjafjarðar. Hún er 455 ha að stærð og girt hömrum nema að sunnanverðu og liggur hæst 105 m y.s. Grímsey er algróin og er mólendi og graslendi ríkjandi.
Mikið fuglalíf er í Grímsey og þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru rita (32.840 pör), langvía (67.293 pör) og álka (114.796 pör). Á eyjunni er ennfremur ein stærsta lundabyggð landsins (40.275 pör).
Grímsey er á IBA-skrá og stór hluti hennar er á náttúruminjaskrá.
Helstu varpfuglar í Grímsey, Eyjafirði – Key bird species breeding in Grímsey, Eyjafjörður
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Rita1 | Rissa tridactyla | Varp–Breeding | 32.840 | 2007 | 5,7 | A4i, B1i, B2 | |
Langvía2 | Uria aalge | Varp–Breeding | 67.293 | 2007 | 9,8 | A4ii, B1ii, B2 | |
Stuttnefja2 | Uria lomvia | Varp–Breeding | 4.054 | 2007 | 1,2 | ||
Álka2 | Alca torda | Varp–Breeding | 114.796 | 2007 | 36,6 | A4ii, B1ii, B2 | |
Lundi3 | Fratercula arctica | Varp–Breeding | 40.275 | 2015 | 2,0 | B2 | |
Alls–Total | 259.258 | A4iii | |||||
¹Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2013. Framvinda íslenskra ritubyggða. Bliki 32: 1–10. ²Arnþór Garðarsson, Guðmundur A. Guðmundsson og Kristján Lilliendahl 2019. Svartfugl í íslenskum fuglabjörgum 2006–2008. Bliki 33: 35–46. ³Arnþór Garðarsson og Erpur Snær Hansen. Lundatal. Í undirbúningi (in preparation). |
English summary
Grímsey island, N-Iceland, has internationally important numbers of Rissa tridactyla (32,840 pairs), Uria aalge (67,293 pairs), Alca torda (114,796 pairs). Furthermore, over 40.000 pairs of Fratercula arctica breed on the island.