Hrísey
SF-N 7
Hnit – Coordinates: N66,00164, V18,38961
Sveitarfélag – Municipality: Akureyrarkaupstaður
IBA-viðmið – Category: A4i, A4iii, B1i, B1ii, B2
Stærð – Area: 744 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)
Hrísey liggur í utanverðum Eyjafirði og er hún 745 ha að stærð. Hún er hæst að norðanverðu, 110 m y.s., og með austurströndinni eru klettar. Eyjan er að mestu lyngi og grasi vaxin, einnig er nokkuð mýrlendi og lúpínubreiður sem stækka ár frá ári. Byggð er í Hrísey sunnanverðri.
Auðugt fuglalíf er í Hrísey (Þorsteinn Þorsteinsson og Sverrir Thorstensen 2014). Þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru kría (9.800 pör) og teista (164 pör). Auk þess er í eynni stórt æðarvarp (3.040 pör) og nokkurt fýlsvarp (4.314 hreiður). Hrísey telst alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð (≥10.000 pör).
Hrísey er á IBA-skrá og norðurhlutinn á náttúruminjaskrá.
Helstu varpfuglar í Hrísey – Key bird species breeding in Hrísey
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (pör) Number (pairs) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Fýll1 | Fulmarus glacialis | Varp–Breeding | 4.314 | 2015 | 0,4 | |
Æður2 | Somateria mollissima | Varp–Breeding | 3.040 | 2004 | 1,0 | B1i, B2 |
Kría2 | Sterna paradisaea | Varp–Breeding | 9.800 | 2014 | 4,9 | A4i, B1i |
Teista2 | Cepphus grylle | Varp–Breeding | 164 | 2014 | 1,3 | B1ii |
Alls–Total | 17.318 | A4iii | ||||
1Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. 2Þorsteinn Þorsteinsson og Sverrir Thorstensen 2014. Fuglar í Hrísey á Eyjafirði. Talning sumarið 2014 með samanburði við talningar 1994 og 2004. Unnið fyrir Umhverfisnefnd Akureyrar. |
English summary
Hrísey island, N-Iceland, hosts internationally important numbers of Sterna paradisaea (9,800 pairs) and Cepphus grylle (164 pairs) as well as a large Somateria mollissima colony (3,040 pairs).