Skagi
VOT-N 5
Hnit – Coordinates: N66,02688, V20,20583
Sveitarfélag – Municipality: Skagabyggð, Skagaströnd, Skagafjörður
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 51.960 ha
Skagi liggur á milli Húnaflóa og Skagafjarðar og er norður- og austurhlutinn fremur láglendur og mikið er þar af vötnum. Ströndin er víðast hvar fremur lág og lítt vogskorin. Skagi er alþjóðlega mikilvægt varpland himbrima (40 óðul), álftar (126 pör) og æðarfugls (um 8.000 pör). Eins er Skagi alþjóðlega mikilvægur fyrir helsingja á fartíma (4.259 fuglar) og straumönd á veturna, þar af 260 fuglar á hluta vesturskagans.
Lítill hluti Skaga er á náttúruminjaskrá: Ketubjörg, Rifsnes, þ.e. strandlengjan frá Landsenda að Skilnaðarhorni, og vötn í grennd við Ásbúðir, ásamt strandlengju og sjávarlónum frá Mánavík að Kelduárvík.
Helstu fuglategundir á Skaga – Key bird species at Skagi
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Lómur1 | Gavia stellata | Varp–Breeding | 30 | 2012 | 2,0 | ||
Himbrimi2 | Gavia immer | Varp–Breeding | *40 | 2016 | 8,0 | A4i, B1i, B2 | |
Álft2 | Cygnus cygnus | Varp–Breeding | **126 | 2012 | 1,2 | B1i | |
Helsingi3 | Branta leucopsis | Far–Passage | 4.259 | 1994 | 11,1 | B1i | |
Æður4*** | Somateria mollissima | Varp–Breeding | 8.000 | 1999 | 2,7 | B1i, B2 | |
Duggönd2 | Aythya marila | Varp–Breeding | ****38 | 2012 | 1,0 | ||
Straumönd5*** | Histrionicus histrionicus | Vetur–Winter | ****260 | 1999 | 1,9 | A4i, B1i | |
*Þekkt óðul. – Known territories. **Pör. – Pairs. ***Skagaströnd (Bakki–Tjarnarland). ****Lágmarkstala. – Minimum number. 1Náttúrufræðistofnun Íslands, gróft mat. – IINH, rough estimate. 2Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. 3Percival, S.M. og T. Percival 1997. Feeding ecology of Barnacle Geese on their spring staging grounds in northern Iceland. Ecography 20: 461–465. 4Jónas Jónsson, ritstj. 2001. Æðarfugl og æðarrækt á Íslandi. Rit Æðarræktarfélags Íslands. Reykjavík: Mál og mynd. Árni Snæbjörnsson, óbirt heimild – unpublished source. 5Arnþór Garðarsson og Þorkell Lindberg Þórarinsson 2003. Útbreiðsla og fjöldi straumanda á Íslandi að vetrarlagi. Bliki 23: 5–20. |
English summary
The Skagi peninsula, N-Iceland, is internationally important for breeding Gavia immer (40 territories), Cygnus cygnus (126 pairs) and Somateria mollissima (c. 8,000 pairs) as well as a staging site for Branta leucopsis (4,259 birds) and wintering Histrionicus histrionicus (260+birds).