24. apríl 2024. Rannveig Thoroddsen: Útþensla byggðar, ógn við búsvæði válistategundarinnar blátoppu (Sesleria albicans)

Rannveig Thoroddsen plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Útþensla byggðar, ógn við búsvæði válistategundarinnar blátoppu, Sesleria albicans“ á Hrafnaþingi 24. apríl 2024 kl. 15:15.

Erindið verður flutt í Krummasölum, fundarherbergi Náttúrufræðistofnunar Íslands á 3. hæð í húsnæði stofnunarinnar í Urriðaholti, Garðabæ. Erindið verður einnig flutt í beinni útsendingu á Youtube.

Blátoppa (Sesleria albicans) er grastegund sem er á válista æðplantna sem tegund í nokkurri hættu (VU) og hefur verið friðuð frá því nóvember 2021. Mjög hefur þrengt að búsvæði blátoppu suðvesturhorninu sem er hennar aðalútbreiðslusvæði, vegna útþenslu byggðar jafnframt sem hún á undir högg að sækja vegna aukinnar útbreiðslu ágengra tegunda.

Sumarið 2023 var útbreiðsla blátoppu kortlögð á höfuðborgarsvæðinu. Tilgangurinn var að uppfæra fyrirliggjandi upplýsingar úr gagnagrunni Náttúrufræðistofnunar Íslands, en flestar skráningarnar sem komnar voru til ára sinna, þannig að þær nýtist aðilum á sviði náttúruverndar og á sviði skipulags og framkvæmda á höfuðborgarsvæðinu.

Í erindinu verður gert grein fyrir uppfærðu mati á útbreiðslu blátoppu á höfuðborgarsvæðinu, í hvers konar búsvæði finnst hún þar og helstu ógnum sem steðja að búsvæði hennar og þá hvernig mætti stemma stigu við þeim.