Kræklinga- og sölvaóseyrar
F2.21 Kræklinga- og sölvaóseyrar
EUNIS-flokkun: Nýr flokkur, tillaga. A1.13 Mytilus and Palmaria estuarine shore.
![kraeklingaoseyri_fossa.jpg Kræklinga- og sölvaóseyrar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/kraeklingaoseyri_fossa.jpg?itok=7C-aZczT)
![kraeklingaoseyri-3.jpg Kræklinga- og sölvaóseyrar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/kraeklingaoseyri-3.jpg?itok=rIQqt-q0)
Lýsing
Kræklingur og söl þekja oft óseyrar þar sem selta er tiltölulega há. Kræklingurinn liggur í knippum sem sölin nota sem festu og mikið er af hrúðurkörlum. Óseyrar af þessari gerð hafa aðeins fundist á örfáum stöðum, en þessi vistgerð og útbreiðsla hennar er lítið könnuð.
Fjörubeður
Steinvölur, möl, sandur.
Fuglar
Mikið af æðarfugli og tjaldi sækir í kræklinginn árið um kring.
Líkar vistgerðir
Útbreiðsla
Hefur fundist á þremur stöðum: við Fossá í Hvalfirði, við Hvolsá (Salthólmavík) á Skarðsströnd og í Herdísarvík í Selvogi.
Verndargildi
Miðlungs.
![kort_f2.21_kraeklingaogsolvaoseyrar.jpg Útbreiðslukort kræklinga- og sölvaóseyrar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/kort_f2.21_kraeklingaogsolvaoseyrar.jpg?itok=jQGZPwYB)
Áberandi gróður – Conspicuous vegetation | Áberandi dýr – Conspicuous animals | ||
---|---|---|---|
Bóluþang | Fucus vesiculosus | Kræklingur | Mytilus edulis |
Söl | Palmaria palmata | Hrúðurkarl | Semibalanus balanoides |
Grænþörungsættkvísl | Ulva spp. | Doppur | Littorina spp. |
Marflær | Amphipoda |
![graf_f2.21_kraeklingaogsolvaoseyrar_dalkar2.jpg Selta og brimasemi í fjöruvistgerðum, kræklinga- og sölvaóseyrar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/graf_f2.21_kraeklingaogsolvaoseyrar_dalkar2.jpg?itok=PJQjVmRg)