Hrafnaþing: Uglur á Íslandi

Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 3. apríl kl. 15:15–16:00, mun Gunnar Þór Hallgrímsson prófessor í dýrafræði við Háskóla Íslands flytja erindið „Uglur á Íslandi“.

Í erindinu fjallar Gunnar um rannsóknir sínar og samstarfsfólks á uglum á Íslandi sem hófust árið 2017. Greint verður frá landnámi, mati á fjölda og útbreiðslu eyruglunnar og greiningum á fæðuvali. Þá verður einnig sagt notkun senditækja við að meta stærð og skörun óðala og hvernig uglurnar nota þau búsvæði sem eru í boði. Branduglum verða einnig gerð skil og farið sérstaklega yfir niðurstöður merkinga með gps-senditækjum. Farið verður yfir hvernig útbreiðsla gps-merktra fugla rímar við þekkta útbreiðslu tegundarinnar hérlendis og einnig sagt frá stórmerkilegum ferðalögum branduglunnar. Einnig verða gefin dæmi um búsvæðaval og fæðu brandugla á Íslandi. Í lok erindis mun Gunnar fara yfir nokkur atriði sem snúa að umgengni mannfólks við uglur og loks hver séu næstu skref í uglurannsóknunum.

Hrafnaþing verður haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð. Því er jafnframt streymt á Youtube-rás stofnunarinnar.