Folafluga, nýlegur landnemi, á góðri siglingu

Folafluga á húsvegg í Hafnarfirði 4. ágúst 2011. Ljósm. Erling Ólafsson.

Fyrsta folaflugan í íbúðahverfi í höfuðborginni fannst í ágúst 2010 í Húsahverfi í Reykjavík. Ári síðar fannst önnur við Leirulæk. Hún er því að öllum líkindum mætt til leiks í Laugadalnum, en á þeim slóðum er gósenland fyrir tegundina og því viðbúið, að henni fjölgi hröðum skrefum á allra næstu árum. Á sama tíma hafði hún komið sér fyrir í nágrenni Hamarskotslækjar í Hafnarfirði. Þar fannst sú fyrsta á húsvegg um miðjan júlí í sumar (2011) og allnokkrar í kjölfarið allt fram í byrjun september. Það endurspeglar vel flugtíma tegundarinnar síðsumars.

Folafluga verður varla til fagnaðar í görðum okkar í framtíðinni, því lirfur hennar geta skaðað garðagróður verulega. Þær eru stórir boltar, mikil átvögl, sem halda sig efst í sverði og naga rótarhala plantna svo þær falla og visna. Á pödduvef Náttúrufræðistofnunar má fræðast frekar um folafluguna.