Markmiðið með könnuninni er að kanna traust almennings til Náttúrufræðistofnunar og þróun þess á milli ára. Einnig er gerður samanburður við aðrar stofnanir.
Náttúrufræðistofnun nýtur mikils trausts 53,4% landsmanna, þar af bera 5% fullkomið traust til stofnunarinnar. 38,8% eru hlutlausir en athygli vekur hversu fáir bera lítið traust til stofnunarinnar, eða 7,9%. Þetta eru svipaðar tölur og undanfarin ár sem er mjög jákvætt sé horft til þeirra þrenginga sem verið hafa undanfarin misseri.
Náttúrufræðistofnun kemur vel út í samanburði við aðrar stofnanir og er vel fyrir ofan meðaltalið og er þar á róli með Heilbrigðiskerfinu og Umboðsmanni Alþingis.
53,4% bera mikið traust til Náttúrufræðistofnunar.
Náttúrufræðistofnun er á róli með umboðsmanni Alþingis og Heilbrigðiskerfinu.
Úrtak könnunarinnar var 1189 manns og var fjöldi svarenda 739, eða 69,2%.