Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_left
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Íslandsmet í magni frjókorna
Í maí hafa verið sett tvö met í magni birkifrjóa á Akureyri. Þann 21. maí fór frjótala birkis í 658 frjó/m3 og er það mesta magn birkifrjóa sem mælst hefur á einum sólarhring hér á landi. Að sama skapi hafa þar mælst fleiri frjókorn í maí en í nokkrum öðrum maímánuði frá upphafi mælinga 1998.
Ársfundur og útgáfa ársskýrslu
Á ársfundinum flutti Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra ávarp. Hún ræddi meðal annars um náttúruna, auðlindir hennar og mikilvægi góðrar þekkingar, því þekking væri stærsta forsenda þess að átta sig á mikilvægi náttúruverndar með sjálfbærni í huga.
Ársfundur Náttúrufræðistofnunar Íslands 2017
Fundinum verður streymt á YouTube og upptaka verður vistuð á rás Náttúrufræðistofnunar.
Aukin náttúruvernd á norðurslóðum
Í skýrslunni The Arctic Protected Areas Indicator Report, sem gefin er út af CAFF Circumpolar Biodiversity Monitoring Program (CBMP) og er vinnuhópur á vegum Norðurskautsráðsins, er gerð grein fyrir vernduðum svæðum á norðurslóðum og stefnumálum þeirra.
Hlýnun jarðar og umsvif mannsins auka hættu á...
Í dag eru fáar framandi tegundir á norðurslóðum en búast má við auknum aðflutningi þeirra með hlýnandi loftslagi og auknum umsvifum eins og vaxandi áhuga á vinnslu auðlinda, búsetu og ferðamennsku. Því er mikilvægt að grípa strax til aðgerða.
Miklar breytingar á líffræðilegri fjölbreytni...
Þetta eru helstu niðurstöður sem koma fram í skýrslunni State of the Arctic Marine Biodiverstiy Report sem gefin var út í 11. maí af Conservation of Arctic Flora and Fauna (CAFF), sem er vinnuhópur um líffræðilega fjölbreytni innan Norðurskautsráðsins.
Fuglamerkingar 2016
Árið 2016 var 96. ár fuglamerkinga á Íslandi og fer Náttúrufræðistofnun Íslands með umsjón þeirra.
Frjómælingar sumarsins eru hafnar
Elri er búið að blómstra á flestum stöðum á landinu en lyng- og víðifrjókorn eru byrjuð að koma í frjógildrurnar. Frjótölur þeirra eru yfirleitt ekki háar vegna þess að þau dreifast aðallega með skordýrum.
Opið hús í borkjarnasafninu á Breiðdalsvík þann 19...
Í vetur hafa staðið yfir framkvæmdir við að koma fyrir í borkjarnasafni Náttúrufræðistofnunar um 30-40.000 metrum af borkjörnum sem safnast hafa saman á landinu á undanförnum áratugum vegna jarðborana í rannsóknaskyni.