Borgarfjörður–Mýrar–Löngufjörur
FG-V 10
Hnit – Coordinates: N64,66135, V22,39728
Sveitarfélag – Municipality: Hvalfjarðarsveit, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur
IBA-viðmið – Category: A4i, A4iii; B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 122.250 ha
Þetta svæði nær yfir grunnsævi og fjörur frá utanverðum Borgarfirði, um Mýrar og Löngufjörur vestur að Stakkhamri, ásamt eyjum og hólmum, fjörukambi og strandvötnum. Einnig telst með landið sjávarmegin við Hringveg nr. 1 og Snæfellsnesveg nr. 54, þar á meðal mýrlendi og vötn á Mýrum og vestur úr. Er einnig flokkað með sjófuglabyggðir og votlendi og önnur svæði inn til landsins. Hér verður aðeins gerð grein fyrir fargestum, vetrar- og fjaðrafellifuglum, þ.e. tegundum sem reiða sig fyrst og fremst á fjörur og grunnsævi.
Mikilvægir viðkomustaðir fyrir farfugla eru á þessu svæði og þær tegundir sem ná alþjóðlegum verndarviðmiðum eru blesgæs (>3.000 fuglar), margæs (að meðaltali >5.000), rauðbrystingur (22.180 fuglar), sanderla (allt að 7.000 fuglar) og jaðrakan (>3.000 fuglar). Á fellitíma ná álft (1.133 fuglar) og æðarfugl (allt að 160.000 fuglar) alþjóðlegum viðmiðum, sem og sendlingur að vetri til (1.745 fuglar).
Stór hluti þessa svæðis er á náttúruminjaskrá og IBA-skrá.
Helstu fjaðrafelli- og viðkomufuglar á svæðinu Borgarfjörður–Mýrar–Löngufjörur – Key passage migrants, wintering and moulting birds in the area Borgarfjörður–Mýrar–Löngufjörur
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
|
---|---|---|---|---|---|---|---|
Álft1 | Cygnus cygnus | Fellir–Moult | 1.133 | 2005 | 4,4 | B1i | |
Blesgæs1 | Anser albifrons flavirostris | Far–Passage | 3.100 | 2012 | 14,1 | B1i | |
Margæs2 | Branta bernicla | Far–Passage | 5.071 | 1990–2010 | 18,1 | A4i, B1i | |
Æður3 | Somateria mollissima | Fellir–Moult | 160.000 | 1973–1974 | 19,3 | A4i, B1i, B2 | |
Rauðbrystingur4 | Calidris canutus | Far–Passage | 22.180 | 1990 | 6,3 | A4i, B1i, B2 | |
Sanderla4 | Calidris alba | Far–Passage | 7.000 | 1990 | 5,8 | A4i, B1i | |
Sendlingur5 | Calidris maritima | Vetur–Winter | 1.745 | 2017 | 3,5 | A4i, B1i | |
Jaðrakan6 | Limosa limosa | Far–Passage | 3.000 | 1999–2002 | 7,5 | A4i, B1i, B2 | |
Alls–Total* | 40.351 | A4iii | |||||
*Fargestir/passage migrants only 1Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. 2Guðmundur A. Guðmundsson, óbirt heimild. – Unpublished source. 3Arnþór Garðarsson1975. Votlendi. Rit Landverndar 4. Reykjavík: Landvernd. 4Arnþór Garðarsson og Guðmundur A. Guðmundsson 1991. Yfirlit um gildi einstakra fjörusvæða fyrir vaðfugla. Óbirt skýrsla. 5Rannsóknarsetur HÍ Suðurlandi/Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – The University of Iceland’s Research Centre in S-Iceland/IINH, unpublished data. 6Tómas G. Gunnarsson, J.A. Gill, P.M. Potts, P.W. Atkinsson, R.E. Croger, G. Gélinaud, Arnþór Garðarsson og W.J. Sutherland 2005. Estimating population size in Black-tailed Godwits Limosa limosa islandica by colour-marking. Bird Study 52: 153–158. |
English summary
Borgarfjörður–Mýrar–Löngufjörur, W-Iceland, is an extensive area of shallow marine waters, islands, intertidal zones and lake studded wetlands. In this section, only passage migrants, winter- and moulting birds will be dealt with. This area has internationally important staging sites for Anser albifrons flavirostris (3,100 birds), Branta bernicla (5,071 bird), Calidris canutus (22.180 birds), Calidris alba (7,000 birds) and Limosa limosa (c. 3,000 birds). It also hosts internationally important numbers of moulting Cygnus cygnus (1,133 birds) and Somateria mollissima (160,000 birds) as well as wintering Calidris maritima (1,745 birds).