Setfjörur
F2 Setfjörur
EUNIS-flokkun: A2 Littoral sediment.
![setfjorur_leira.jpg Setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/setfjorur_leira.jpg?itok=gHBPsZMz)
![setfjorur-3.jpg Setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/setfjorur-3.jpg?itok=MnjLGf7d)
![setfjorur-vikurfjara_7.jpg Setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/setfjorur-vikurfjara_7.jpg?itok=nqhJMNyT)
![setfjorur_gryttur-sandleir.jpg Setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/setfjorur_gryttur-sandleir.jpg?itok=6tvXYmHE)
Lýsing
Gróðurlaus fjara að mestu leyti. Á stöðum þar sem fjörubeður er grófgerður kemur brimasemi í veg fyrir að gróður nái festu og á skjólsælum leirum er undirlagið of mjúkt fyrir fjörugróður. Tegundasamsetning fjörulífríkisins ræðst af brimasemi og grófleika fjörusets; því grófara sem fjörusetið er og halli fjörunnar meiri, þeim mun betur rennur sjórinn úr setinu þegar fjarar út. Tegundafjölbreytni er yfirleitt mest í skjólsælum fjörum með fínu og meðalgrófu seti sem heldur vel í sér raka þegar lágsjávað er. Fáar tegundir þrífast þó í þéttum súrefnissnauðum leir sem liggur misdjúpt undir yfirborðinu.
Fjörubeður
Steinvölur, möl, sandur, leir.
Útbreiðsla
Allt landið.
![kort_f2_setfjorur.jpg Útbreiðslukort setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/kort_f2_setfjorur.jpg?itok=nCu5QuRK)
![graf_f2_setfjorur_kaka.jpg Setfjörur og hlutfallsleg skipting á umfangi undirvistgerða þeirra](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/graf_f2_setfjorur_kaka.jpg?itok=lyBm38DJ)
![graf_f2_setfjorur_dalkar2.jpg Selta og brimasemi í fjöruvistgerðum, setfjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/graf_f2_setfjorur_dalkar2.jpg?itok=zqw0yGIC)
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Margt býr í fjörunni – Fjörur eru til umfjöllunar, bæði grýttar fjörur og setfjörur, og sérstaklega er fjallað um leirur. Einnig er fjallað um gulstararfitjavist sem tilheyrir strandlendi (sýnt í Landanum á RÚV 28.10.2018).