Grýttar fjörur
F1 Grýttar fjörur
EUNIS-flokkun: A1 Littoral rock and other hard substrata.
![grytt-fjara_2_-2.jpg Grýttar fjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/grytt-fjara_2_-2.jpg?itok=5jnzeIZK)
![grytt-fjara-skufthangsfjara-isafjardardjup.jpg Grýttar fjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/grytt-fjara-skufthangsfjara-isafjardardjup.jpg?itok=jvsxUJEr)
![grytt_fjara_4-2.jpg Grýttar fjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/grytt_fjara_4-2.jpg?itok=5AgyLBur)
![grytt_fjara6_berufjordur_.jpg Grýttar fjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/grytt_fjara6_berufjordur_.jpg?itok=tzTrJKaj)
Lýsing
Fjörubeður einkennist af hörðum klöppum og stórgrýti. Hann, ásamt brimasemi, ræður miklu um lífsskilyrði og hvernig vistgerðin skiptist í undirflokka. Aðrir eðlisþættir sem móta lífríkið eru halli fjörunnar, munur flóðs og fjöru, sjávarhiti og selta. Í klappar- og stórgrýtisfjörum hafa þörungar betri festu og þola betur brimrót en í fjörum þar sem undirlag er lausara. Stærri þörungar vaxa aðeins þar sem undirlag er nógu fast fyrir og veltur ekki í brimróti. Því meira sem brim er, þeim mun haldbetra þarf undirlagið að vera til að þörungar fái þrifist. Þeir þrífast einnig illa í klappar- og stórgrýtisfjörum þar sem laus möl og sandur skolast til með öldum og skrapa gróður af undirlaginu. Smávaxnir einærir þörungar geta þó vaxið tímabundið á slíkum stöðum á meðan sjór er kyrr á sumrin. Í mjög brimasömum og grýttum fjörum, þar sem lítið vex af þörungum, eru hrúðurkarlar gjarnan áberandi.
Fjörubeður
Klappir, stórgrýti, hnullungar, steinvölur.
Útbreiðsla
Allt í kringum landið nema á söndum suðurstrandarinnar, þ.e. frá Stokkseyri og austur í Hvalnesskriður.
![kort_f1_gryttarfjorur.jpg Útbreiðslukort grýttar fjörur](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/kort_f1_gryttarfjorur.jpg?itok=mH8J653f)
![graf_f1_gryttarfjorur_kaka.jpg Grýttar fjörur og hlutfallsleg skipting á umfangi undirvistgerða þeirra](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/graf_f1_gryttarfjorur_kaka.jpg?itok=Vy3ANaed)
![graf_f1_gryttarfjorur_dalkar2.jpg Selta og brimasemi í fjöruvistgerðum](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/graf_f1_gryttarfjorur_dalkar2.jpg?itok=5wGAJV3E)
Opna í kortasja – Open in map viewer
Margt býr í fjörunni – Fjörur eru til umfjöllunar, bæði grýttar fjörur og setfjörur, og sérstaklega er fjallað um leirur. Einnig er fjallað um gulstararfitjavist sem tilheyrir strandlendi (sýnt í Landanum á RÚV 28.10.2018).