Sogið–Þingvallavatn
VOT-S 6
Hnit – Coordinates: N64,05815, V20,98239
Sveitarfélag – Municipality: Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshreppur, Ölfus
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 11.500 ha
Þingvallavatn er stærsta stöðuvatn á Íslandi (83,7 km2) og er mesta dýpi þessi 114 m. Sogið er 19 km löng lindá sem fellur úr Þingvallavatni og sameinast Hvítá við austanvert Ingólfsfjall. Talsvert fuglalíf er á þessu svæði árið um kring (Kjartan G. Magnússon 1992, Kjartan G. Magnússon og Páll Hersteinsson 2002). Það telst alþjóðlega mikilvægt fyrir himbrima, húsönd og gulönd. Margir tugir himbrima og allt að 200 hafa sést þar á haustin. Einnig eru á þessu svæði hátt í 10 himbrimaóðul. Húsendur sjást þarna árið um kring, en þó einkum á vetrum, 75 fuglar að meðaltali undanfarin ár, og ríflega 20 gulendur.
Þingvallavatn er að hluta til innan Þingvallaþjóðgarðs og Sogið ásamt nokkru svæði umhverfis er á náttúruminjaskrá sem og á IBA-skrá.
Helstu fuglategundir við Sogið og Þingvallavatn – Key bird species by river Sogið and lake Þingvallavatn*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Himbrimi | Gavia immer | Varp–Breeding | **10 | 2016 | 2,0 | B2 |
Himbrimi | Gavia immer | Far–Passage | 80 | 2013 | 10,7 | A4i, B1i, B2 |
Húsönd1 | Bucephala islandica | Vetur–Winter | 75 | 2005–2014 | 3,8 | A4i, B1i |
Gulönd1 | Mergus merganser | Vetur–Winter | 22 | 2005–2014 | 2,4 | B1i |
*Byggt á Náttúrufræðistofnun, óbirt gögn. – From IINH, unpublished data. **Þekkt óðul. – Known territories. 1Náttúrufræðistofnun Íslands, vetrarfuglatalningar. – IINH, mid-winter counts. |
English summary
Lake Þingvallavatn and its outlet river Sog, S-Iceland, are internationally important staging sites for Gavia immer (80 birds in 2013; up to 200 have been observed) as well as wintering sites for Bucephala islandica (75 birds) and Mergus merganser (22 birds).
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Heimildir – References
Kjartan G. Magnússon 1992. Birds of the Thingvallavatn area. Oikos 64: 381–395.
Kjartan G. Magnússon og Páll Hersteinsson 2002. Fuglar og spendýr á vatnasviði Þingvallavatns. Í Pétur M. Jónasson og Páll Hersteinsson, ritstj. Þingvallavatn: undraheimur í mótun, bls. 97–187. Mál og Menning: Reykjavík.