Jöklar á Tröllaskaga

Tímamörk

Langtímarannsóknar- og vöktunarverkefni.

Samstarfsaðilar

Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Jarðfræðideild Háskólans í Tromsö og Landfræðideild Háskólans í Madríd.

Um verkefnið – Markmið og verkþættir

Náttúrufræðistofnun Íslands hóf árið 2008 árlega vöktun á afkomu jökla á Tröllaskaga í því skyni að rannsaka þróun jöklanna á nútíma, eða síðustu 10.000 ár. Ekki er síst um að ræða jökla sem hafa þá sérstöðu að vera grjótjöklar eða vera að miklu leiti huldir urð. Rannsóknir og vöktun á nútímajöklum á Tröllaskaga, hvort sem um ræðir hefðbundna jökla, jökla hulda urð eða grjótjökla, eykur þekkingu á eðli og þróun smájökla á Íslandi, sem lítið hefur verið rannsakað. 

Meginmarkmið verkefnisins er að auka skilning á jöklunarsögu og umhverfisbreytingum á Tröllaskaga, allt frá lokum síðasta jökulskeiðs fyrir um 12–15 þúsund árum til dagsins í dag. Í því tilliti eru stundaðar rannsóknir á landmótunarumhverfi jökla á Tröllaskaga þar sem áhersla er lögð á kortlagningu lausra jarðlaga og aldursgreiningar jökulstaða og fleiri landforma, bæði á landmótunarsvæðum fornra jökla skagans og á virkum svæðum framan núverandi jökla. Markmið verkefnisins er einnig að auka þekkingu á eðli og þróun nútímajökla á Tröllaskaga með rannsóknum, vöktun og kortlagningu á afkomu og landmótunarumhverfi jöklanna. Smám saman byggist upp þekking og gagnagrunnur um eðli smájökla á Tröllaskaga og ekki síst um tengsl við veðurfar og þær umhverfisbreytingar sem virðast eiga sér stað á landinu þessi misserin.

Rannsóknunum er ætlað að stuðla að aukinni þekkingu á jöklunarsögu Tröllaskaga, nútímabreytingum jöklanna og mögulega einnig framtíðarhorfum jökla á svæðinu. Verkefnið er hluti rannsóknaverkefnisins jöklabreytingar síðasta jökulskeiðs á Íslandi. Saman er þeim ætlað að auka þekkingu og mynda yfirgripsmikla heildarmynd á jökla- og umhverfisbreytingum Tröllaskaga og á landinu öllu.

Samstarfsaðilar

Verkefnið er unnið í samvinnu við jarðfræðinga frá Háskóla Íslands og erlendum háskólum.

Nánari upplýsingar

Jöklar

Jöklar á Tröllaskaga og umhverfi þeirra

Niðurstöður

Karl Stefánsson. 2021. Landmótun Bægisárdals, Lambárdals og Húsárdals. Meistaraprófsritgerð við Háskóla Íslands.

Palacios , D., M. Rodríguez-Mena, J.M. Fernández-Fernández, I. Scimmelpfennig, L.M. Tanarro, J.J. Zamorano, N. Andrés, J. Úbeda, Þ. Sæmundsson, S. Brynjólfsson, M. Oliva, A.S.T.E.R. Team 2021. Reversible periglacial transition in response to climate changes and paraglacial dynamics: A case study from Héðinsdalsjökull (northern Iceland). Geomorphology 388: 107787. DOI: 10.1016/j.geomorph.2021.107787

Tanarro, L.M., D. Palacios, J.M. Fernández-Fernández, N. Andrés, M. Oliva, M. Rodríguez-Mena, I. Scimmelpfennig, S. Brynjólfsson, Þ. Sæmundsson, J.J. Zamorano, J. Úbeda, A.S.T.E.R. Team 2021. Origins of the divergent evolution of mountain glaciers during deglaciation: Hofsdalur cirques, Northern Iceland. Quaternary Science Reviews 273: 107248. DOI: 10.1016/j.quascirev.2021.107248

Skafti Brynjólfsson 2021. Afkoma jökla á Tröllaskaga jökulárið 2019–2020 (pdf, 1,4 MB). Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-21003. Akureyri: Náttúrufræðistofnun Íslands. 

Fernández-Fernández, J.M., D. Palacios, N. Andrés, I. Scimmelpfennig, L.M. Tanarro, S. Brynjólfsson, F.J. López-Acevedo, Þ. Sæmundsson og A.S.T.E.R. Team 2020. Constraints on the timing of the debris-covered and rock glaciers: An exploratory case study in the Hólar area, northern Iceland. Geomorphology 361: 1–22. DOI: 10.1016/j.geomorph.2020.107196

Skafti Brynjólfsson 2020. Afkoma jökla á Tröllaskaga jökulárið 2018–2019 (pdf, 6,6 MB). Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-20005. Akureyri: Náttúrufræðistofnun Íslands. 

Tussetschlager, H., S. Brynjólfsson, S. Brynjólfsson, T. Nagler, R. Sailer og J. Wuite 2020. Perennial snow patch detection based on remote sensing data on Tröllaskagi Peninsula, northern Iceland. Jökull 60: 103–128. DOI:10.33799/jokull2019.69.103

Fernandés-Fernandés, J.M., D. Palacios, N. Andrés, I. Schimmelpfennig, S. Brynjólfsson, L.G. Sancho, J.J. Zamorano, S. Heiðmarsson, Þ. Sæmundsson og ASTER Team 2019. A multi-proxy approach to Late Holocene fluctuations of Tungnahryggsjökull glaciers in the Tröllaskagi peninsula (northern Iceland). Science of the Total Environment 664: 499–517. DOI: 10.1016/j.scitotenv.2019.01.364Skafti Brynjólfsson 2018. Afkoma jökla á Tröllaskaga 2016–2017 (pdf, 2,5 MB). Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-18008. Akureyri: Náttúrufræðistofnun Íslands. utgafa.ni.is/skyrslur/2018/NI-18008.pdf [skoðað 9.6.2021]

Skafti Brynjólfsson 2019. Afkoma jökla á Tröllaskaga 2017–2018 (pdf, 3,6 MB). Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-19004. Akureyri: Náttúrufræðistofnun Íslands. 

Tanarro, L.M., D. Palacios, N. Andrés, J.M. Fernández-Fernández, J.J. Zamorano, Þ. Sæmundsson, S. Brynjólfsson 2019. Unchanged surface morphology in debris- covered glaciers and rock glaciers in Tröllaskagi peninsula (northern Icealnd). Science of the Total Environment 646: 218–235. DOI: 10.1016/j.scitotenv.2018.07.460

Skafti Brynjólfsson, Nuria Palacios, David Palacios og Þorsteinn Sæmundsson 2018. Preliminary results based on 24 new 36Cl exposure dagings reveals asynchronous deglacial history of Tröllaskagi, central north Iceland. Erindi flutt á The Nordic Geological Meeting, janúar 2018, Kaupmannahöfn, Danmörku.

José M. Fernández-Fernández, Nuria Andrés, Skafti Brynjólfsson, Þorsteinn Sæmundsson og David Palacios 2017. High sensitivity of North Iceland (Tröllaskagi) debris-free glaciers to climatic change from the “Little Ice Age” to the present. The Holocene, 27(8): 1187–1200.

Skafti Brynjólfsson, Anders Schomacker og Ólafur Ingólfsson 2012. Surge fingerprinting of cirque glaciers at the Tröllaskagi peninsula, North Iceland. Jökull 62: 153–168.

Tengiliður

Skafti Brynjólfsson, jarðfræðingur.