Svæðið er tilnefnt vegna fugla.
![Eldey. Eldey](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/022db656ae8fa97adde5bd06e9204397.jpg?itok=veo63KV_)
Mörk
Eldey suðvestur af Reykjanesi ásamt 2 km verndarjaðri umhverfis eyjuna.
Lýsing
Gróðursnauð há og þverhnípt klettaeyja. Fiskveiðar eru stundaðar í grennd við eyjuna en fuglanytja eru fyrir löngu aflagðar.
Forsendur fyrir vali
Lengst af mesta súlubyggð landsins en nú verpa þar um 40% íslenska stofnsins.
Fuglar - Sjófuglabyggðir
Nafn | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | Hlutfall af íslenskum stofni (%) |
---|---|---|---|---|
Súla (Morus bassanus) | Varp | 14810
|
2013–2014 | 40,0
|
Ógnir
Mikil skipaumferð er skammt undan með tilheyrandi hættu á mengunarslysum.
Aðgerðir til verndar
Eldey er fyrsta friðland fugla hér á landi, frá árinu 1940 en núverandi friðlýsingarskilmálar eru frá 1974. Ákvæði í friðlýsingarskilmálum eru talin að mestu fullnægjandi en kanna þarf nauðsyn þess að takmarka umferð skipa í grennd við eyjuna.
Núverandi vernd
Núverandi verndarsvæði | Staða |
---|---|
Eldey-jaðarsvæði | Annað |
Eldey | Friðland |
Útgáfudagsetning
Gefið út: 2018-04-05 Síðast uppfært: 2020-05-26![Map of Eldey Location of area Eldey in iceland](/sites/default/files/styles/original_medium/public/externals/324a7b151a24bcb0b7581d5e2e63e499.jpg?itok=T08RJTSL)
Kortasjá
Eldey í kortasjáStærð
12,6 km2
Hlutfall sjór 100%