18. janúar 2012. Sverrir Guðmundsson: Stjörnuskoðun að vori
18. janúar 2012. Sverrir Guðmundsson: Stjörnuskoðun að vori
![Sverrir Guðmundsson, Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness Sverrir Guðmundsson, Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/sverrir.jpg?itok=y5TRvVc8)
Sverrir Guðmundsson, ritari Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og stjörnufræðikennari, flytur erindi sitt um stjörnuskoðun að vori á Hrafnaþingi miðvikudaginn 18. janúar kl. 15:15.
Fjallað verður um það helsta sem sést á himninum fyrri hluta ársins, svo sem Karlsvagninn, Sjöstirnið, Óríon, tunglið og reikistjörnurnar en vorið 2012 er óvenju hentugt til reikistjörnuskoðunar. Einnig mun Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verða kynnt stuttlega og fjallað um vaxandi vinsældir þessa áhugamáls.
Upptaka af erindinu misfórst.
![Merkúr, Venus, Júpíter og Sjöstirnið 27. feb. 2012 Merkúr, Venus, Júpíter og Sjöstirnið 27. feb. 2012](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/merkur_venus_jupiter.jpg?itok=SWQkadRM)
![Reikistjarnan Mars í ljónsmerkinu 27. feb. 2012 Reikistjarnan Mars í ljónsmerkinu 27. feb. 2012](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/mars_ljonsmerkid.jpg?itok=FQ6rQeoC)