11. apríl 2012. Karl Skírnisson: Um hvítabirni og komur þeirra til Íslands
11. apríl 2012. Karl Skírnisson: Um hvítabirni og komur þeirra til Íslands
![Karl Skírnisson Karl Skírnisson](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/Karl_Skirnisson.jpg?itok=8fwRaSpz)
Karl Skírnisson, dýrafræðingur á Tilraunastöðinni á Keldum, flytur erindi sitt um hvítabjarnarkomur á Íslandi, á Hrafnaþingi miðvikudaginn 11. apríl kl. 15:15.
Í erindinu verður fjallað um hvítabirni og komur þeirra til Íslands. Greint verður frá niðurstöðum krufninga á fjórum dýrum sem synt hafa hingað til lands á undanförnum fjórum árum. Fimmta dýrið til umfjöllunar er björn sem aflífaður var við hafísjaðarinn norður af landinu í sumarbyrjun 1993. Rannsóknirnar hafa meðal annars beinst að athugunum á kynþroska, ásigkomulagi og aldri. Þá hefur leit verið gerð að sníkjudýrum og fannst tríkínan Trichinella nativa í vefjum tveggja bjarnanna. Uppruni fæðuleifa í meltingarvegi var einnig greindur. Sýni hafa verið tekin úr dýrunum fyrir erlenda samverkamenn, til dæmis til mælinga á eiturefnum og til að kanna skyldleika hvítabjarna innan Austur-Grænlandsstofnsins sem og tengsl við aðliggjandi stofna. Að endingu eru nefndar mögulegar ástæður þess að hvítabirnir yfirgefa náttúruleg heimkynni sín við Austur Grænland og leggja í ferðalög sem ávallt hafa reynst vera feigðarflan þegar stefnan var tekin á Ísland.
Birt var grein í Náttúrufræðingnum, Um aldur og ævi hvítabjarna, eftir Karl Skírnisson (pdf, 6,16 MB).
![Loppa hvítabjarnar Loppa hvítabjarnar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/hvitabjorn_fotur.jpg?itok=nANA5vhP)
![Tennur hvítabjarnar Tennur hvítabjarnar](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/hvitabjorn_tennur.jpg?itok=pMqrcnt-)
![Þorvaldur Þór Björnsson og Karl Skírnisson við hvítabjarnarskrokk Þorvaldur Þór Björnsson og Karl Skírnisson við hvítabjarnarskrokk](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/thorvaldur_og_karl.jpg?itok=x0WRSTy-)