31. október 2018. Hreinn Óskarsson og Björn Traustason: 100 ára friðun birkiskóga á Þórsmerkursvæðinu
Hreinn Óskarsson skógfræðingur hjá Skógræktinni flytur erindið „100 ára friðun birkiskóga á Þórsmerkursvæðinu“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 31. október 2018 kl. 15:15. Meðhöfundur hans að erindinu er Björn Traustason landfræðingur hjá Skógræktinni.
Skógræktin hefur haft Þórsmörk og Goðaland til umsjónar síðan árið 1920. Þá afsöluðu bændur í Fljótshlíð og kirkjurnar í Odda og Breiðabólstað sér beitarrétti á svæðinu. Svæðið var áður fyrr þakið birkiskógum en eftir aldalanga beit og skógarhögg voru skógar á svæðinu nær horfnir. Eftir nær aldarlanga umsjá Skógræktarinnar hefur flatarmál birkiskóga margfaldast á svæðinu og hafa skógarnir hækkað og þéttst. Í erindinu verður fjallað um útbreiðslu birkiskóganna, uppgræðsluaðgerðir og sögu beitarfriðunar á svæðinu.
![Hreinn Óskarsson Hreinn Óskarsson, annar höfundur erindis á Hrafnaþingi um 100 ára friðun birkiskóga á Þórsmerkursvæðinu](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/hreinnoskarsson.jpg?itok=iYBZeRUz)
![Björn Traustason Björn Traustason, annar höfundur erindis á Hrafnaþingi um 100 ára friðun birkiskóga á Þórsmerkursvæðinu](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/bjorn_traustason.jpg?itok=stZS-tkD)
![Þórsmörk Birkiskógar og kjarr hafa breiðst út á Þórsmerkursvæðinu á síðustu árum. Hefur flatarmál skóga fjórfaldast síðan 1960.](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/ho_thorsmork.jpg?itok=Aq93-bVf)