24. nóvember 2021. Birgir Vilhelm Óskarsson: Breytingar í Surtsey og við Fagradalsfjall rannsakaðar með þrívíddartækni
Birgir Vilhelm Óskarsson jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið „Breytingar í Surtsey og við Fagradalsfjall rannsakaðar með þrívíddartækni“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 24. nóvember kl. 15:15.
Síðastliðin tvö ár hefur Náttúrufræðistofnun Íslands unnið að gerð þrívíddarlíkanna af landsvæðum sem nýtast við jarðfræðirannsóknir og vöktun svæða. Við sumar aðstæður og atburði eru landslagsbreytingar örar og í erindinu verður fjallað um vöktun Surtseyjar og gossvæðisins við Fagradalsfjall, þar sem sjáanlegar og magnbundnar breytingar eru umfangsmiklar.
![ni-birgir-v-oskarsson-2021.jpg Birgir V. Óskarsson](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/ni-birgir-v-oskarsson-2021.jpg?itok=5Bx1SVeO)
![Þrívíddarlíkan af Surtsey Þrívíddarlíkan af Surtsey](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/surtsey.jpg?itok=V-38SSx3)
![Eldgos í Fagradalsfjalli](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/fagra.jpg?itok=iEY_VUp9)