2. desember 2020. Gísli Pálsson: Fuglinn sem gat ekki flogið
![Gísli Pálsson Gísli Pálsson](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/hrafnathing_gisli_palsson.jpg?itok=DQv1-wSV)
Gísli Pálsson prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands flytur erindi á Hrafnaþingi miðvikudaginn 2. desember 2020 kl. 15:15.
Í erindinu mun Gísli gera grein fyrir nýútkominni bók sinni, Fuglinn sem gat ekki flogið, hvað hvatti hann til að skrifa hana, á hverju hann byggir frásögnina og hvaða erindi hún á við nútímann, svokallaða mannöld sem einkennist af vaxandi áhrifum mannsins á allt lífríkið, meðal annars fuglaheiminn.
![geirfugl_6.nicolasrobert.jpg](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/geirfugl_6.nicolasrobert.jpg?itok=ymzemVY7)