18. október 2017. Jón Einar Jónsson: Merkingar á æðarkollum í Breiðafjarðareyjum
Jón Einar Jónsson forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi flytur erindið „Merkingar á æðarkollum í Breiðafjarðareyjum“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 18. október kl. 15:15.
Í erindinu verður fjallað um langtímarannsókn á æðarfuglum sem hófst í Breiðafjarðareyjum árið 2015. Val fugla á hreiðurstæði er háð því að forðast rándýr á álegutímanum, auk þess sem það er tengt átthagatryggð, dagsetningu varps og varpárangri æðarkollna.
Markmið verkefnisins eru að:
- kanna hvort kvenfuglar sýni mismunandi átthagatryggð milli eyja og ára.
- skýra einstaklingsbreytileika í vali á hreiðurstæði og varpárangri.
- bera saman varpárangur, dagsetningu varps, og álegu milli rannsóknareyjanna, sem eru ólíkar um staðhætti, gróðurfar, afræningja og tegundir annarra varpfugla.
- kanna hvort tryggð við hreiður eykst með aldri kvenfugla.
Þessi atriði tengjast líka staðháttum, til dæmis hver áhrif fjarlægðar frá sjó eru á ofantalda þætti.
Vettvangsvinna í maí og júní felur í sér föngun, merkingar og mælingar á kvenfuglum og mælingar á varpárangri og líkamsástandi þeirra. Einnig eru notaðar myndavélar til að fylgjast með afdrifum hreiðra og hegðan fuglana á álegu. Sumarið 2017 voru 258 kvenfuglar nýmerktir auk þess sem 187 voru endurheimtir. Þar með hefur 681 kolla verið merkt og alls hafa fengist 315 endurheimtur.
Sérstaða rannsóknarsvæðisins felst í breytileika í lit kvenfugla og fjölbreyttu gróðurfari og landslagi. Það leiðir aftur til áhugaverðs breytileika í hreiðurstaðavali innan og á milli varpstaða. Ferðalög merktra æðarkollna munu skýra skyndilegar breytingar í fjölda hreiðra í einstökum æðarvörpum.