Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Stofnunin lokuð vegna starfsdags
Vinsamlegast athugið að móttaka í Urriðaholti Garðabæ og í Borgum á Akureyri er lokuð í dag, 24. apríl, vegna starfsdags stofnunarinnar.
Hrafnaþing: Ráðgátan um steingerðu fótsporin í...
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 12. apríl kl. 15:15–16:00, mun Birgir Vilhelm Óskarsson jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytja erindið „Ráðgátan um steingerðu fótsporin í Surtsey“.
Gróðureldur við Óttarsstaði vestan við Straumsvík
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið gróðurskemmdir á landspildu við Óttarsstaði rétt vestan við Straumsvík í Hafnarfirði eftir elda sem loguðu þar 23.–25. mars. Svæðið sem brann var 9 ha að flatarmáli samkvæmt mælingum stofnunarinnar.
Skýrsla um útbreiðslu innfluttra plöntutegunda...
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur gefið út skýrslu um rannsóknir á útbreiðslu innfluttra plöntutegunda meðfram vegum á hálendi Íslands en rannsóknirnar voru styrktar af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Hrafnaþing: Skriðuföllin í Hörgárdal árið 1390 og...
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 29. mars kl. 15:15–16:00, mun Halldór G. Pétursson jarðfræðingur flytja erindið „Skriðuföllin í Hörgárdal árið 1390 og afdrif Gásakaupstaðar“.
Fylgst með ferðum hafarna
Haförninn Lambi, sem merktur var við sunnanverðan Breiðafjörð síðasta sumar, gerðist víðförull eftir að hann yfirgaf æskuóðal sitt í nóvember. Nokkrir ungar eru heimakærari og dvelja enn á æskuóðulum sínum þrátt fyrir að senn líði að varpi foreldranna.
Hrafnaþing: Athugun á breytileika í erfðamengjum...
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 15. mars kl. 15:15–16:00, mun Snæbjörn Pálsson prófessor í stofnlíffræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands flytur erindið „Athugun á breytileika í erfðamengjum hafarna“.
Hrafnaþing: Evrópski endurheimtuatlasinn
Á Hrafnaþingi miðvikudaginn 1. mars kl. 15:15–16:00, mun Svenja N.V. Auhage umhverfis- og vistfræðingur flytja erindið „Evrópski endurheimtuatlasinn“.
Fuglamerkingar 2021
Út er komin skýrsla um fuglamerkingar á Íslandi árið 2021. Alls voru merktir 17.713 fuglar af 73 tegundum og voru merkingamenn 49 talsins. Langmest var merkt af auðnutittlingum, tæplega helmingur fuglanna. Alls bárust 3.240 tilkynningar um endurheimtur og álestra af íslenskum merkjum.