Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Birkiþélan eflist
Þetta nýja meindýr er æðvængja sem kallast birkiþéla (Scolioneura betuleti). Menn áttuðu sig fyrst á tilvist hennar hér sumarið 2017 en ekki var vitað hvenær hún fyrst kom sér fyrir.
Frumathugun á trjábolaförum í Ófeigsfirði
Trjábolaför eða trjáholur eru steingervingar og njóta verndar samkvæmt lögum um náttúruvernd nr. 60/2013. Trjáholur hafa fundist á nokkrum stöðum á Íslandi en yfirleitt finnast slík för þar sem hraunlög mætast eða neðarlega í hraunlögum.
Frjómælingar í júlí
Á Akureyri var hiti í júlí yfir meðallagi síðustu 10 ára og rigningardagar voru óvenju margir. Heildarfjöldi frjókorna var 1334 frjó/m3, sem er langt yfir meðaltali. Þau voru samfellt í lofti alla daga mánaðarins en um helmingur þeirra mældist á tveimur dögum undir lok mánaðar.
Surtseyjarleiðangur jarðfræðinga 2019
Leiðangur jarðfræðinga Náttúrufræðistofnunar Íslands til Surtseyjar var farinn 18.–22. júlí í kjölfar líffræðileiðangurs. Með í för voru sérfræðingar frá Íslenskum Orkurannsóknum, Háskóla Íslands, Matís, Landmælingum Íslands og Háskólanum í Bergen, ásamt landverði frá Umhverfisstofnun.
Surtseyjarleiðangur líffræðinga 2019
Surtsey kemur vel undan þurrkatíð sumarsins. Rannsóknir líffræðinga í eynni undanfarna daga sýndu að sem fyrr er gróður þar í mikilli sókn. Á hverju ári má merkja aukna útbreiðslu graslendis en það nýtur góðs af öflugri áburðargjöf máfa sem hreiðrað hafa um sig á strangfriðaðri eynni.
Takmörkuð þjónusta Náttúrufræðistofnunar Íslands...
Á Akureyri verður tekið á móti myglusveppum úr húsum til greininga, ásamt því sem sveppafræðingur tekur gjarnan á móti upplýsingum um sveppi. Símanúmer sveppafræðings er 5900574.
Hægt er að senda inn erindi á netfangið ni@ni.is.
Frjómælingar í júní
Á Akureyri mældust 546 frjó/m3 en meðaltalið er 703 frjó/m3. Mest var af grasfrjóum (180 frjó/m3) og var fjöldi þeirra talsvert yfir meðaltali. Lítið mældist hins vegar af birkifrjóum (42 frjó/m3) og er frjótíma þeirra nú lokið.
Útgáfa vistgerðalykils
Árið 2016 lauk Náttúrufræðistofnun Íslands lýsingu og kortlagningu á vistgerðum á landi, í ferskvatni og fjörum hér á landi.
Lúsmý nýtur góðs af góðviðrinu
Á Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið fylgst með framvindu lúsmýs og upplýsinga safnað. Dregist hefur að koma fróðleik á framfæri þar sem treglega gekk að finna tegundinni fræðiheiti. Þegar tegundarheiti liggur ekki fyrir er ómögulegt að afla upplýsinga um útbreiðslu og lífshætti.