Fréttir
- 2024 chevron_right
- 2023 chevron_right
- 2022 chevron_right
- 2021 chevron_right
- 2020 chevron_right
- 2019 chevron_right
- 2018 chevron_right
- 2017 chevron_right
- 2016 chevron_right
- 2015 chevron_right
- 2014 chevron_right
- 2013 chevron_right
- 2012 chevron_right
- 2011 chevron_right
- 2010 chevron_right
- 2009 chevron_right
- 2008 chevron_right
- 2007 chevron_right
- 2006 chevron_right
Fréttir
Samantekt frjómælinga 2020
Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna 3.147 frjó/m3 og voru grasfrjó langalgengust (54%). Hlutfall birkifrjóa var 14%, asparfrjóa 10% og súrufrjóa 3%. Um 15% frjókorna voru af ýmsum tegundum sem jafnan ber lítið á. Flest frjókorn voru í lofti í ágústmánuði eða um 40% af frjókornum sumarsins.
Veiðiþol rjúpnastofnsins 2020
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur metið veiðiþol rjúpnastofnsins haustið 2020 og hafa niðurstöðurnar verið kynntar umhverfis- og auðlindaráðherra með bréfi. Ráðlögð rjúpnaveiði í haust er um 25 þúsund fuglar.
Ársskýrsla 2019
Ársfundur stofnunarinnar var ekki haldinn á árinu vegna heimsfaraldurs Covid-19. Ársskýrslan er hins vegar efnismikil þar sem litið er yfir verkefni sem voru í brennidepli á árinu og margþætta starfsemi stofnunarinnar.
Samkomulag um Rannsóknasetur Háskóla Íslands á...
Háskóli Íslands, Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands gerðu nýverið með sér samkomulag um rekstur rannsóknaseturs á sviði jarðfræði og málvísinda á Breiðdalsvík.
Dagur íslenskrar náttúru og náttúrufarsrannsóknir
Náttúruminjaskrá
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur umsjón með tilnefningu svæða á náttúruminjaskrá og í sumar voru farnar vettvangsferðir til að vinna að tillögum og rannsaka frekar svæði sem þegar hafa verið tilnefnd.
Frjómælingar í ágúst
Á Akureyri var heildarfjöldi frjókorna í ágúst 1.259 frjó/m3, sem er töluvert yfir meðaltali, og voru þau samfellt í lofti allan mánuðinn. Grasfrjó voru langalgengust (92%) eða 1.164 frjó/m3. Aðrar helstu frjógerðir sem mældust í mánuðinum voru netlu-, elftingar- og súrufrjó.
Takmörkuð þjónusta vegna sumarleyfa
Á Akureyri verður tekið á móti myglusveppum úr húsum til greininga, ásamt því sem sveppafræðingur tekur gjarnan á móti upplýsingum um sveppi. Símanúmer sveppafræðings er 5900574.
Hægt er að senda inn erindi á netfangið ni@ni.is.
Surtseyjarleiðangur líffræðinga 2020
Rannsóknir líffræðinga í Surtsey undanfarna daga sýna að gróska í eynni er með eindæmum góð þetta sumarið. Aldrei áður hafa fundist jafnmargar æðplöntutegundir og þar af voru tvær nýjar. Einnig eru tvær nýjar smádýrategundir komnar fram.