Tveir staðir á Íslandi á meðal hundrað merkra jarðminjastaða á lista IUGS 2024

Á Alþjóðlegri jarðfræðiráðstefnu sem haldin var í Busan í Suður-Kóreu dagana 25. - 31. ágúst var kynntur nýr listi yfir hundrað jarðminjastaði á jörðinni og þar á meðal eru tveir staðir á Íslandi, Reykjanes og Vatnajökull. 

Markmið Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS)  með útgáfu jarðminjalista er að vekja athygli á mikilvægi jarðminja til fræðslu og þekkingar, að opinbera alþjóðlega viðurkenningu á mikilvægi þeirra, en fyrst og fremst að stuðla að varðveislu merkra jarðminjastaða. 

Þetta er í annað sinn sem IUGS tekur saman lista yfir merka jarðminjastaði og nefnist hann „The Second 100 IUGS Geological Heritage Sites“ . Fyrsti listinn var birtur á 60 ára afmælishátíð sambandsins árið 2022 undir heitinu „The First 100 IUGS Geological Heritage Sites“. Jarðminjastaðirnir eru birtir rafrænt og einnig í bókarútgáfu. Ráðgert er að listar IUGS verði þrír og mun sá þriðji birtast á árinu 2026. 

Til að komast á jarðminjalista IUGS þurfa jarðminjastaðir að hafa mikið alþjóðlegt vísindagildi, þeir eru heimsins bestu dæmi um ákveðin myndunar- og mótunarferli, þetta eru staðir þar sem gerðar hafa verið merkar jarðfræðilegar uppgötvanir t.d. um sögu jarðar, eða staðir þar sem rannsóknir hafa stuðlað að þróun jarðfræði sem vísindagreinar. Umfjöllun um jarðminjar má sjá á vef IUGS

Tveir mikilvægir jarðminjastaðir á Íslandi voru samþykktir á jarðminjalista IUGS 2024 og er það mikill heiður.

Náttúrufræðistofnun tilnefndi eldstöðina Reykjanes á jarðminjalista IUGS sem alþjóðlegan mikilvægan jarðminjastað vegna tengingu hans við Mið-Atlantshafshrygginn. Þar má sjá gliðnun jarðlaga, misgengi og gossprungur. Auk þess er gossaga, berggerð og jarðhitasvæði Reykjaness mjög  áhugaverð. Reykjanes er á náttúruminjaskrá og innan Reykjaness jarðvangs 

Alþjóðlegt samband landmótunarfræðinga (International Association of Geomorphologists) tilnefndi Vatnajökul sem alþjóðlega mikilvægan jarðminjastað vegna samspils jökuls og eldvirkni. Jökulhlaup og sandar eru fágæt fyrirbæri í heiminum og við Vatnajökul finnast á meðal bestu dæma um þau. Í Vatnajökli eru auk þess virkar megineldstöðvar, mismunandi gerðir jökla og margbreytileg landform mynduð af jökli. Vatnajökull er þjóðgarður og á heimsminjaskrá UNESCO.