Fræðslumyndasögur á Degi íslenskrar náttúru

Fræðslumyndasögur um líffræðilega fjölbreytni eru birtar á vef Náttúrufræðistofnunar á Degi íslenskrar náttúru. Tvær fyrstu sögurnar voru birtar á síðasta ári og voru afrakstur verkefnis sem styrkt var af Nýsköpnarsjóði námsmanna þar sem markmiðið var að þróa hugmyndina um notkun myndasagna í uppfræðandi tilgangi. Nú hefur þremur sögum verið bætt við og sögurnar fimm mynda eina samfellu.

Fyrsta sagan er inngangur að umfjöllunarefninu, líffræðilegri fjölbreytni. Í henni eru hugtökunum vistkerfi og líffræðileg fjölbreytni gerð skil og þau sett í samband við Ísland og heiminn í heild. Í næstu sögu er rætt almennt um hvers vegna líffræðileg fjölbreytni heimsins er sögð standa í hnignun, hvernig hnignunin virkar í grunnatriðum og í hverju verðmæti líffræðilegrar fjölbreytni eru fólgin. Þriðja sagan fjallar um röskun og eyðingu búsvæða, helstu ógnina við líffræðilega fjölbreytni í heiminum. Önnur stærsta ógnin við líffræðilega fjölbreytni eru ágengar tegundir en þeim hefur fjölgað ört með auknum samgöngum og vöruflutningum milli landa. Í fjórðu sögunni er ljósi varpað á framandi og ágengar tegundir á Íslandi. Í fimmtu og síðustu sögunni komast lesendur í návígi við jarðhitavistkerfi og íslensk kóralsvæði, einstök en jafnframt viðkvæm vistkerfi sem fá oft litla umfjöllun.

Höfundar myndasagnanna eru Unnar Ingi Sæmundarson sem skrifar texta og Vala Steingrímsdóttir sem myndskreytir.