Ný Náttúrufræðistofnun

Alþingi samþykkti í gær frumvarp um nýja Náttúrufræðistofnun. Með staðfestingu laganna verða Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fær heitið Náttúrufræðistofnun.

Ný Náttúrufræðistofnun fer með þau hlutverk og verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn hafa í dag. Stofnunin á að efla faglegt starf á sviði gagnaöflunar, rannsókna, mælinga, kortlagningar og vöktunar á náttúru Íslands, tryggja markvissa uppbyggingu gagnasafna og rannsóknainnviða með góðu aðgengi að gögnum og áreiðanlegum rauntímamælingum og vera öflug í miðlun og fræðslu. Þá er áhersla lögð á öflugar grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir sem verða meðal annars unnar á grundvelli samráðs milli stofnana. 

Starfsmenn hinnar nýju stofnunar verða um 80 talsins með starfsstöðvar víða um land.

Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur