Auglýst eftir stofnvistfræðingi

Náttúrufræðistofnun Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing til að taka þátt í spennandi verkefnum stofnunarinnar á sviði fuglafræði. Starfið felur í sér rannsóknir og greiningarvinnu í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vöktun og rannsóknir á sviði stofnvistfræði og fuglafræði
  • Úrvinnsla og greining gagna
  • Vinna við mat á verndargildi og gerð válista tegunda
  • Vettvangsvinna og skýrslugerð í ráðgjafaverkefnum
  • Ráðgjöf og fræðsla til sérfræðinga og almennings
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur

Nánari upplýsingar um starfið

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2024.