Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands fyrir árið 2021 er komin út á rafrænu formi. Í skýrslunni er að finna gott yfirlit yfir fjölbreytta starfsemi stofnunarinnar og tölulegar rekstrarupplýsinar.
Í ársskýrslunni er lögð áhersla á að gefa yfirlit yfir margbreytilega starfsemi stofnunarinnar og verkefni sem voru efst á baugi á árinu. Meðal þeirra eru ýmis rannsóknaverkefni og verkefni á sviði náttúruverndar, ráðgjafar og alþjóðasamstarfs. Þá er greint frá útgáfu og miðlun og ársreikningur birtur.