Grágæsahópur á ísilögðum Holtsósi undir Eyjafjöllum í kvöldhúmi 18. nóvember 2020.
– Ljósm. Kristinn Haukur Skarphéðinsson
Upplýsingarnar nýtast einnig til að fylgjast með langtímabreytingum á stofnum margra tegunda, til dæmis silfurmáfs.
Vetrarfuglatalningar, sem áður voru kallaðar „jólatalningar“, hófust hér á landi í desember 1952. Byggjast þær einvörðungu á sjálfboðaliðum og hafa margir þeirra tekið þátt um áratugaskeið.
Niðurstöður talninga verða settar inn á vefsíðuna Vetrarfuglatalningar jafnskjótt og þær berast og þar er einnig að finna samantekt talninga fyrri ára og talningareyðublað.