Særður fálki reyndist vera skotinn
![Særður fálki í haldi að Hnjúki í Vatnsdal 12. febrúar 2018 Særður fálki í haldi að Hnjúki í Vatnsdal 12. febrúar 2018](/sites/default/files/styles/hero_extra_large/public/thumbnails/image/srm_falki_13022018.jpg?h=7881f276&itok=xGcjz6jF)
Sigurður R. Magnússon frá Hnjúki í Vatnsdal fangaði ófleygan fálkann í Vatnsdal þann 12. febrúar síðastliðinn og vildi koma honum til bjargar. Fyrir milligöngu lögreglunnar á Blönduósi tókst að fá far fyrir fálkann suður til Reykjavíkur kvöldið eftir og þar tók starfsmaður Náttúrufræðistofnunar Íslands á móti fuglinum. Við skoðun á stofnuninni að morgni 14. febrúar kom í ljós að þetta var kvenfálki á þriðja vetri og særður á vinstri væng. Fuglinn var í góðum holdum og vó 1.585 grömm. Röntgenmyndataka á Dýraspítalanum í Víðidal sýndi að vængurinn var óbrotinn en hins vegar kom í ljós að fuglinn hafði lifað af skotárás. Fimm högl voru fálkanum, en þó ekki í væng. Engar blæðingar var að sjá þar sem höglin hafa hæft fuglinn og því hefur skotatlagan mögulega verið gerð löngu áður og hann svo nýlega slasaðast í Vatnsdal.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur um langt skeið átt í samstarfi við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn um að hlúa að særðum og sjúkum ránfuglum sem komast undir mannahendur. Fálkinn var að aflokinni læknisskoðun fluttur í þangað þar sem hann verður uns sárin eru gróin og hann fleygur á ný.
Alkunna er að fálkar hafa verið alfriðaðir á Íslandi í meira en hálfa öld en þrátt fyrir það er ekki einsdæmi að fálkar séu skotnir. Staðreyndin er að um fjórðungur af þeim fálkum sem hafa fundist dauðir á víðavangi og verið krufðir á Náttúrufræðistofnun Íslands síðastliðinn áratug hafa verið skotnir.
Óskiljanlegt er hvað rekur menn til verka af þessu tagi. Hvort sem um er að ræða þekkingarleysi, rótgróna óvild í garð fálkans eða auðshyggju ættu slíkar athafnir aldrei að eiga sér stað.
![Röntgenmynd af væng fálka 14. febrúar 2018 Röntgenmynd af væng fálka 14. febrúar 2018. Í honum er hagl.](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/falki_rontgen_20180214_vaengur.jpg?itok=zh13XZBZ)
![Röntgenmynd af búk fálka 14. febrúar 2018 Röntgenmynd af búk fálka 14. febrúar 2018. Í honum eru fimm högl.](/sites/default/files/styles/original_small/public/thumbnails/image/falki_rontgen_20180214_bukur.jpg?itok=BasWKHkD)