Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Guðmundsson forstöðumaður safna- og flokkunarfræðideildar og Jón Gunnar Ottósson forstjóri. – Ljósm. Kjartan Birgisson
Ráðherrann átti fund með forstjóra og forstöðumönnum stofnunarinnar þar sem hlutverk, starfsemi og helstu verkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands voru kynnt og rædd. Að fundi loknum var gengið um stofnunina, húsnæðið skoðað og starfsemin kynnt frekar.
Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Hans H. Hanssen, sérfræðingur í landupplýsingakerfum og kortlagningu vistgerða. – Ljósm. Kjartan Birgisson