Leirufjarðarjökull, framhlaupsjökull í norðvestanverðum Drangajökli , sem skríður ofan í Leirufjörð. Jökulársandar og jökulgarðar einkenna dalbotnana framanmegin skriðjökla Drangajökuls. – Ljósm. Skafti Brynjólfsson
Í erindinu er fjallað um jöklunarsögu, sveiflur, setmyndanir og landmótun Drangajökuls. Einnig er rætt um jöklunar- og afísunarsögu Vestfjarða, frá seinni hluta síðusta jökulskeiðs til nútíma. Erindið er byggt á nýloknu doktorsverkefni þar sem saga jöklunar og framhlaupa Drangajökuls var rannsökuð.
Vinsamlega athugið Náttúrufræðistofnun Íslands er grænn vinnustaður og beinir þeim tilmælum til allra sem hafa tök á að samnýta ferðir og nota vistvænan ferðamáta.