Viðurkenning Náttúrufræðistofnunar Íslands fyrir fjögur Græn skref – Ljósm. Erling Ólafsson
Þeir þættir sem horft er til við innleiðingu Grænna skrefa eru sex talsins: innkaup; miðlun og stjórnun; fundir og viðburði; flokkun og minni sóun; rafmagn og húshitun; og samgöngur. Skrefin eru innleidd í fjórum áföngum, en fimmta og síðasta skrefið sýnir helstu aðgerðir sem þarf að innleiða til að byggja upp umhverfisstjórnunarkerfi.
Náttúrufræðistofnun Íslands var meðal fyrstu stofnana ríkisins í að hefja aðlögun starfseminnar að markmiðum grænna skrefa og er stofnunin nú ein af þremur stofnunum sem hafa lokið fjórum grænum skrefum. Undirbúningur fimmta skrefsins er þegar hafinn og stefnt er að því að ljúka innleiðingu á árinu. Á vef Grænna skrefa má sjá hvaða stofnanir taka þátt í verkefninu og hvar þær eru staddar í ferlinu.
Hólmfríður Þorsteinsdóttir frá Umhverfisstofnun afhendir Guðmundi Guðmundssyni, staðgengli forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, viðurkenningarskjal fyrir fjögur Græn skref. Á myndinni eru einnig Guðmundur Guðjónsson og Emilía Ásgeirsdóttir. – Ljósm. Erling Ólafsson