Hin nýja Nishinoshima eyja, 25. desember 2014. Gufa stígur af gígnum sem hrauntungur liggja út frá. Á strönd glittir í klett sem er leif af gömlu eynni. – Ljósm. Japan Coast Guard
Fjallað verður um litla og afskekkta eldey, Nishinoshima, sem liggur í eyjaklasa í Kyrrahafi, um 1000 km suður af Japan. Tíndir verða saman fróðleiksmolar um eyna og hún borin lítillega saman við Surtsey.