Melgresi og fjöruarfi bárust á fyrstu árum með sjó til Surtseyjar og hafa komið sér þar vel fyrir. Líklegt er að flestir landnemar í Surtsey séu komnir frá Vestmannaeyjum og nærsveitum uppi á landi. – Ljósm. Borgþór Magnússon
Í erindinu verður fjallað um landnám plantna í Surtsey, framvindu gróðurs og þróun vistkerfis. Einnig verður greint frá fyrstu niðurstöðum rannsókna þar sem gamalt graslendi í Elliðaey og Heimaey er borið saman við graslendi sem tekið er að myndast í Surtsey.