Frá vinstri: Guðbjartur Hannesson, Katrín Jakobsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Höskuldur Þórhallsson, Trausti Baldursson, Róbert Marshall, Þórunn Pálína Jónsdóttir, Jón Gunnar Ottósson og Vilhjálmur Árnason.
Nefndin átti fund með forstjóra og forstöðumönnum stofnunarinnar þar sem hlutverk, starfsemi og helstu verkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands voru kynnt og rædd. Að fundi loknum var gengið um stofnunina, húsnæðið skoðað og starfsemin kynnt frekar.
Alls eru níu þingmenn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis en það voru fimm nefndarmenn sem heimsóttu Náttúrufræðistofnun. Það voru Höskuldur Þórhallsson, formaður, Guðbjartur Hannesson, Katrín Jakobsdóttir, Róbert Marshall og Vilhjálmur Árnason. Auk þess kom ritari nefndarinnar, Þórunn Pálína Jónsdóttir.
Þorvaldur Þór Björnsson hamskeri stofnunarinnar segir frá vinnu við uppsetningu beinagrindar steypireiðar. Frá vinstri: Guðbjartur Hannesson, Þorvaldur Þór, Katrín Jakobsdóttir, Jón Gunnar Ottósson og Róbert Marshall.