Norðurslóðadagur haldinn á morgun

Rætt um (1) hvernig íslenskt vísindasamfélag er í stakk búið til að mæta þeim áskorunum sem hraðfara breytingar á norðurslóðum hafa í för með sér og (2) hvernig vísindasamfélagið er undirbúið til að taka þátt í vaxandi alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði.

Fjallað verður á þverfaglegan hátt um framlag og verkefni íslenskra aðila sem koma að alþjóðlegri samvinnu í vöktun, rannsóknum og menntun á norðurslóðum. Kynnt verða viðfangsefni sem tengjast háskólamenntun, mannauði og stoðkerfi rannsókna, þ.m.t. umgjörð stofnana til samvinnu. Jafnframt verður fjallað um valin dæmi um samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana.

Skipuleggjendur Norðurslóðadagsins eru Samvinnunefnd umhverfisráðuneytisins um málefni norðurslóða; framkvæmd er í höndum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, Rannís, Hafrannsóknastofnunar og Norðurslóðanets Íslands.

Náttúrufræðistofnun Íslands er ein af stofnununum sem standa að Norðurslóðadegi. Á veggspjaldasýningu verður hægt að kynna sér nokkur af verkefnum stofnunarinnar.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á vef Norðurslóðanets Íslands.