Náttúrugripagreining á degi íslenskrar náttúru

Úr safni Náttúrufræðistofnunar Íslands, uppsett skeiðönd. Ljósm. Hrafnhildur Edda Magnúsdóttir.

Í tilefni af deginum er boðið upp á ýmsa viðburði víða um land og á höfuðborgarsvæðinu. Náttúrufræðistofnun Íslands ætlar að halda upp á daginn með því að bjóða upp á náttúrugripagreiningar milli klukkan 15 og 17. Almenningi gefst þá kostur á að fá sérfræðinga stofnunarinnar til að greina fyrir sig náttúrugripi að Urriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ og að Borgum við Norðurslóð á Akureyri.

Í Urriðaholti verða sérfræðingar í steinum, steingervingum, íslenskum plöntum, pöddum, sjávardýrum, fuglum og villtum spendýrum. Á Akureyri verða sérfræðingar í sveppum, íslenskum plöntum, fléttum og steinum.

Dagur íslenskrar náttúru á vef umhverfis- og auðlindaráðuneytis.