Upplýsingarnar nýtast einnig til að fylgjast með langtímabreytingum á stofnum margra tegunda.
Talningarnar hófust hér á landi í desember 1952. Byggjast þær einvörðungu á sjálfboðaliðum og hafa margir þessara fuglaáhugamanna tekið þátt um áratugaskeið.
Niðurstöður talninga verða settar inn á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar um vetrarfuglatalningar jafnskjótt og þær berast og þar er einnig að finna samantekt talninga 2002-2011 og talningareyðublað. Sjá einnig flýtival á þá síðu hér til vinstri.