Í erindinu verður fjallað um niðurstöður rannsóknar á spóum sem fram fór á Suðurlandi á árunum 2009-2011. Rannsóknin beindist að spóum sem sækja í að verpa á hálfgrónum áreyrum. Áreyrar og önnur búsvæði spóa voru borin saman með tilliti til varpþéttleika, varpárangurs og endurkomu, auk þess sem fæðuframboð og afrán var kannað.
Erindið verður flutt í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar aðUrriðaholtsstræti 6-8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð kl. 15:15-16:00. Sjá kort.